13 × 18 cm

Innrammað

Innrammaðar myndir – þín ljósmynd í eikar-, svörtum, hvítum eða hnoturamma

Safngæða prentun í ramma með kartoni, framleitt á Íslandi.

Snið

Stærð

Rammi

Gerð ramma

Fjöldi

1
3.490 krm. vsk

Hladdu upp mynd til að halda áfram

  • Afhending venjulega 3–6 virkir dagar
  • Sent með Dropp — afhendingarstaðir um allt land
  • Prentað og frágengið í Reykjavík
3.490 kr
13 × 18 cm · m. vsk

Um vöruna

Innrammað, tilbúið upp á vegg.

Prentun á hágæða pappír í tréramma — eik, svart, hvítt eða hnota — með eða án kartons. Sett saman í Reykjavík.

Svarthvít ljósmynd af fílum í svörtum ramma með hvítu kartoni
Prentun
Hágæða pappír og blek sem er gert til að endast
Rammi
Eikaráferð, svart, hvítt eða hnotuáferð
Gerð ramma
Standard, með gleri eða gegnheill viður — eftir stærð
Karton
Valfrjálst hvítt karton með staðlaðri opnun — í 30 × 40 ramma sést 20 × 29 cm af myndinni
Frágangur
Prentað og innrammað í Reykjavík

Spurningar

Karton eða ekki?

Kartonið gefur myndinni loft innan rammans og er klassískt gallerí‑útlit. Kartonið er forskorið með staðlaðri opnun, þannig að myndin sjálf er talsvert minni en ramminn: í 30 × 40 ramma sést 20 × 29 cm, í 50 × 70 sést 39 × 49 cm. Forskoðunin sýnir nákvæmlega það sem kemur í opnunina. Án kartons fyllir myndin rammann út að brún.

Hver er munurinn á gerðum ramma?

Standard er léttur rammi með plastgleri og fylgir verðinu í töflunni. Gler er rammi með alvöru gleri. Gegnheill viður er breiðari rammi úr gegnheilum viði með gleri — gallerí-frágangurinn. Hvaða gerðir eru í boði fer eftir stærð; verðmunurinn birtist um leið og þú velur.

Get ég séð hvernig þetta lítur út á vegg?

Já — eftir að þú hleður inn mynd getur þú skoðað verkið í þrívídd og í stofu í réttri stærð.

Hvernig er sent?

Með Dropp á afhendingarstað að þínu vali, vel varið fyrir flutning. Sendingargjald fer eftir lengri hliðinni: 990 kr undir 60 cm, 1.490 kr fyrir 60–90 cm, 1.990 kr fyrir stærri verk — ein sending á pöntun.

Stærðir og verð

Verð með vsk fyrir standard-ramma — sama verð fyrir alla fjóra rammalitina, með eða án kartons. Rammi með gleri og gegnheill viðarrammi eru í boði í flestum stærðum gegn aukagjaldi sem birtist í uppsetningunni. Innrammaðar myndir eru í föstum stærðum sem fylgja rammalagernum; þurfirðu aðra stærð bjóðum við pappírsprentun skorna eftir máli í rammann sem þú átt.

Snið Stærð Verð
Lóðrétt 13 × 18 cm 3.490 kr
Lóðrétt 21 × 30 cm 5.990 kr
Lóðrétt 30 × 40 cm 8.990 kr
Lóðrétt 40 × 50 cm 10.990 kr
Lóðrétt 50 × 70 cm 19.990 kr
Lóðrétt 61 × 91 cm 32.990 kr
Lóðrétt 70 × 100 cm 39.990 kr
Ferningur 30 × 30 cm 8.990 kr
Ferningur 40 × 40 cm 12.990 kr
Ferningur 50 × 50 cm 16.990 kr

Hvaða myndir henta í ramma

Innrömmun hentar myndum sem eiga að vera skarpar og nálægar: portrett, svarthvítar myndir, götumyndir, barnamyndir og myndir með smáatriðum sem þú vilt skoða. Pappírinn er mattur, og karton gefur myndinni loft innan rammans — klassíska gallerí-útlitið. Án kartons fyllir myndin rammann út í kant og virkar stærri.

Rammalitirnir: eik fer vel við ljós tréhúsgögn og hlýja liti, svart rammar svarthvítar myndir inn og dregur fram kontrast, hvítt lætur litríkar myndir njóta sín á ljósum vegg og hnota passar við dekkri innréttingar. Eftir að þú hefur hlaðið inn mynd geturðu skoðað verkið í stofu í réttri stærð áður en þú pantar.

Innrammaðar myndir eru líka öruggur kostur fyrir röð af myndum: þrjár 30 × 40 cm í sama ramma yfir sófanum, eða stigagangur með fjölskyldumyndum í sömu stærð og sama lit.

Rammi, strigi eða pappír?

Fimm leiðir upp á vegg — hver með sínum kostum.

Innrömmun
Ljósmyndaprentun á pappír í tréramma, með eða án kartons, tilbúin upp á vegg. Það er þessi síða.
Strigamynd
Mynd á striga, strekkt á blindramma, hangir án ramma og glers. Hentar mjúkum myndum og stórum stærðum. Skoða strigaprentun.
Ljósmyndaprentun á pappír
Prentið eitt og sér, skorið upp á sentimetra — í ramma sem þú átt, sem plakat eða til að stækka mynd. Skoða pappírsprentun.
Úr mörgum myndum
Klippimynd með nokkrum myndum í einum ramma, eða mósaík þar sem hver flís er ein af þínum ljósmyndum.

Svona römmum við inn

Myndin er prentuð á hágæða pappír í Reykjavík, skorin, lögð undir karton ef þú velur það og sett saman í rammann í höndunum. Upphengi fylgir. Innrammaðar myndir fara vel varðar í kassa með Dropp á afhendingarstað að þínu vali — að jafnaði 3–6 virkum dögum eftir pöntun.