Um Artiq

Myndirnar þínar, prentaðar og frágengnar í Reykjavík.

Hjá Artiq hjálpum við þér að koma uppáhaldsmyndunum þínum úr símanum og upp á vegg.

Innrömmuð landslagsmynd á verkstæði Artiq í Reykjavík
Frágangur á verkstæðinu okkar í Reykjavík.

Sagan

Við stofnuðum Artiq því okkur fannst allt of margar góðar myndir enda bara í símanum. Mynd á vegg er eitthvað allt annað — þú sérð hana á hverjum degi og hún verður hluti af heimilinu.

Við prentum myndir á hágæða striga eða pappír og sjáum um allan frágang hér í Reykjavík. Við leggjum áherslu á góð gæði, fallegan frágang og að hver mynd sé tilbúin til að fara beint upp á vegg.

Verkstæðið

Prentað breitt, skorið nákvæmt.

Prentbreidd
allt að 111 cm
Litir
gerðir til að haldast
Stærðir
skornar á sentimetra
Frágangur
í höndunum í Reykjavík

Kjarninn í verkstæðinu er 44 tommu breiðprentari sem prentar allt að 111 cm á breidd með bleki sem er gert til að endast. Það þýðir að við prentum stórar myndir í einu lagi, í litastýrðu ferli, á hágæða pappír og striga.

Hver pappírsprentun er síðan skorin í höndunum á skurðarvél. Þess vegna erum við ekki bundin við staðlaðar stærðir: þú getur pantað nákvæmlega þá stærð sem passar á vegginn eða í rammann sem þú átt — á sentimetra, upp í 110 cm á styttri hliðinni.

Það sem skiptir okkur máli

  1. Handunnið

    Prentað, frágengið og sent í höndunum frá Reykjavík.

  2. Gert til að endast

    Hágæða pappír og blek sem varðveitir litina.

  3. Mósaíkvélin

    Okkar eigin hugbúnaður breytir heilu myndasafni í eitt listaverk.

Búðu til eitthvað fyrir vegginn þinn.

Skoða vörur