Mósaík

Ljósmyndamósaík: heilt myndasafn, eitt listaverk.

Veldu aðalmynd og myndasafn — vélin raðar myndunum í eitt verk sem við prentum á striga eða römmum inn í Reykjavík.

Efni
Stærð

Aðalmynd

Myndasafn

Smelltu til að velja myndir — minnst 10, en 30 eða fleiri gefa bestan árangur.

Veldu aðalmynd og minnst 10 myndir í safnið

Stærðir og verð

Verð með vsk. Mósaík á striga er strekkt á blindramma og hangir án ramma; innrammað mósaík er prentað á pappír og sett í ramma með kartoni. Verðið fylgir strigaprentun og innrömmun í sömu stærð.

Efni Stærð Verð
Striga 40 × 40 cm 14.990 kr
Striga 60 × 60 cm 25.490 kr
Striga 80 × 80 cm 31.990 kr
Striga 40 × 50 cm 15.990 kr
Striga 50 × 70 cm 21.990 kr
Striga 50 × 40 cm 15.990 kr
Striga 70 × 50 cm 21.990 kr
Innrammað 30 × 40 cm 8.990 kr
Innrammað 40 × 50 cm 10.990 kr
Innrammað 50 × 70 cm 19.990 kr
Innrammað 61 × 91 cm 32.990 kr

Hvaða myndir henta í mósaík

Aðalmyndin — sú sem mósaíkið myndar þegar horft er úr fjarlægð — virkar best ef hún er einföld og auðþekkjanleg: andlit, tveir á mynd, gæludýr, hús, kennileiti eða merki. Myndir með mörgum smáatriðum eða lágum kontrasti drukkna í flísunum.

Myndasafnið er flísarnar. Minnst þarf 10 myndir, en 30 eða fleiri gefa fjölbreyttari tóna og betra verk, og hundrað eða fleiri er enn betra. Blandaðar myndir — ljósar og dökkar, nærmyndir og landslag — gefa vélinni meira úr að moða en fimmtíu myndir úr sömu veislunni. Hver flís er sýnileg nálægt, svo veldu myndir sem þú vilt sjá upp á vegg.

Mósaíkmynd er gjöf sem segir sögu: brúðkaup úr myndum gestanna, stórafmæli úr myndum ævinnar, fyrsta ár barnsins, ferðalagið eða minningarmynd um einhvern sem er farinn. Þú sérð sýnishorn með vatnsmerki áður en þú pantar og getur byrjað upp á nýtt eins oft og þú vilt.

Mósaík, klippimynd eða ein mynd?

Fimm leiðir upp á vegg — hver með sínum kostum.

Ljósmyndamósaík
Heilt myndasafn sett saman í eina mynd; hver flís er ljósmynd. Á striga eða innrammað. Það er þessi síða.
Klippimynd
Tvær til sextán myndir í einum ramma, í reitum eða dreift eins og polaroid-myndir — þegar myndirnar eiga að sjást hver fyrir sig. Skoða klippimynd.
Strigamynd
Ein mynd á striga, strekkt á blindramma. Skoða strigaprentun.
Innrömmun eða pappír
Ein ljósmynd í ramma með kartoni — innrammaðar myndir — eða ljósmyndaprentun á pappír skorin eftir máli í þinn eigin ramma.

Svona verður mósaíkið til

Vélin okkar greinir aðalmyndina og velur flís úr safninu þínu fyrir hvern reit eftir lit og tónum, þannig að aðalmyndin sést skýrt úr fjarlægð en hver flís nálægt. Lokaútgáfan er prentuð í fullri upplausn í Reykjavík — á striga strekktan á blindramma, eða á pappír og römmuð inn — og send með Dropp á afhendingarstað að þínu vali. Reiknaðu með 3–6 virkum dögum frá pöntun.

Spurningar um mósaík

Hvað þarf ég margar myndir?

Minnst 10 í safnið auk aðalmyndar. 30 eða fleiri gefa betra verk, og vélin endurnýtir flísar eftir þörfum ef safnið er lítið, svo sama myndin getur birst oftar en einu sinni.

Sést hver mynd í mósaíkinu?

Já, nálægt. Í 60 × 60 cm verki eru flísarnar nokkurra sentimetra stórar — nóg til að þekkja andlit og staði. Í minnstu stærðunum eru flísarnar smærri og aðalmyndin ræður meira.

Get ég breytt eftir að ég sé sýnishornið?

Já. Þú getur skipt um aðalmynd, bætt við eða fjarlægt myndir og búið til nýtt sýnishorn eins oft og þú vilt áður en þú setur verkið í körfu.