Pappír og blek
Hágæða pappír, litir sem haldast.
Við prentum á hágæða pappír með bleki sem er gert til að endast — djúpir, mattir litir sem haldast árum saman.
Prentun á pappír og striga, innrömmun og mósaík — allt prentað og frágengið í Reykjavík.
Vörur
Prentað á striga og strekkt á tréramma — tilbúið til upphengingar.
Prentun í ramma úr eik, svörtu, hvítu eða hnotu, með eða án kartons.
Hágæða pappír, skorinn í nákvæmlega þá stærð sem þú velur.
Heilt myndasafn sett saman í eitt listaverk, á striga eða innrammað.
Nokkrar myndir í einum ramma, með kartoni.
Svona virkar það
Veldu myndina úr símanum eða tölvunni og sníddu hana til í uppsetningunni.
Pappír, strigi eða rammi. Staðlaðar stærðir — eða þín eigin, á sentimetra.
Prentað og frágengið í Reykjavík, sent með Dropp á afhendingarstað nálægt þér.
Handverkið
Pappír og blek
Við prentum á hágæða pappír með bleki sem er gert til að endast — djúpir, mattir litir sem haldast árum saman.
Innrömmun
Rammar úr eik, svörtu, hvítu eða hnotu, með eða án kartons. Hver mynd er römmuð inn og frágengin í höndunum hjá okkur, tilbúin til upphengingar þegar hún kemur úr kassanum.
Litastýring
Við prentum á 44 tommu breiðprentara og stýrum litunum alla leið frá skrá að pappír — svo prentið stendur undir því sem þú sást á skjánum.

Mósaík
Hladdu upp aðalmynd og myndasafni — vélin okkar raðar myndunum í eitt mósaík sem myndar aðalmyndina. Prentað á striga eða innrammað.
Búa til mósaíkSpurt og svarað
Venjulega 3–6 virkir dagar. Við prentum og göngum frá í Reykjavík og sendum með Dropp — þú færð tilkynningu þegar sendingin er komin á afhendingarstaðinn sem þú valdir.
Notaðu stærstu útgáfuna af myndinni sem þú átt — ekki skjámynd eða mynd sem hefur farið í gegnum samfélagsmiðla. Gott viðmið er um 150 punktar á tommu í prentstærð: 12 megapixla símamynd dugar vel í 40×50 cm. Ertu í vafa? Sendu okkur skrána á artiq@artiq.is og við metum hana.
Já. Pappírsprentanir skerum við í hvaða stærð sem er, upp í 110 cm á styttri hliðinni — á sentimetra. Strigaverk strekkjum við líka í þinni stærð, í 5 cm þrepum upp í 90 × 160 cm. Þú þarft ekki að velja staðlaða stærð.
Eik, svart, hvítt og hnota. Þú velur hvort myndin er með kartoni eða fyllir rammann alveg út í kant.
Pappírsprentanir sendum við upprúllaðar í hólki eða flatar, eftir stærð — sendingargjald 990 kr. Strigi og innrammaðar myndir fara vel varðar í kassa: 990 kr undir 60 cm, 1.490 kr að 90 cm og 1.990 kr fyrir stærri verk. Öll pöntunin fer í einni sendingu með Dropp á afhendingarstað sem þú velur við pöntun.
Settu saman prentun á nokkrum mínútum. Verð með vsk.